Ég er fluttGerđa Kristjáns
eða bloggið mitt amk ;) Ég er farin yfir á Moggabloggið, þannig að þið sem eruð með link á mig, endilega uppfæra hann :)Stoliđ af Svönu bloggiGerđa Kristjáns

Fortíđarflipp....Gerđa Kristjáns
....detta uppí hugann öðru hvoru. Sérstaklega eftir símtal eins og það sem ég fékk í gærkvöldi. Guðrún Dagný, gömul (ekki samt öldruð gömul sko hehe) vinkona mín hringdi. Alveg meiriháttar að heyra í henni :o)) Spjölluðum saman heillengi og fastsettum að þegar ég færi í bæinn næst yrðum við að vera í bandi og hittast, alltof langt síðan síðast.Sumarið áður en ég fór í 10. bekk (ss sumarið "90 held ég) fluttum við fjölskyldan frá Patró suður í spillinguna........Breiðholtið í Reykjavík ! Ekki beint sniðugur tími fyrir viðkvæma unglingsdruslu (ss ég) að byrja í nýjum skóla og allt það......búin að vera alla mína skólagöngu í litla skólanum á Patró, með sömu krökkunum nánast frá forskóla eins og það hét þá. (Jesús minn, það er eins og maður sé háaldraður). En allavegana, 10. bekk tók ég í Hólabrekkuskóla. Þekkti náttúrulega ekki sálu, mætti á skólasetninguna og varð nánast skíthrædd við þetta lið. Það var auðvitað svakalega mikill munur á nemendafjölda. Fyrir vestan vorum við ca 12-14 í bekk í hverjum árgangi. 10. bekkur í Hólabrekkuskóla var skipt í fjórar bekkjadeildir, 101,102,103 og 104. Ég lenti í 102. Þar var Guðrún líka. Þegar ég sá hana fyrst hefði ég aldrei trúað því að við yrðum góðar vinkonur. Hún var pönkari og þá hafði ég aldrei séð nema niður á Hallærisplani í fréttunum !! Hún var snoðklippt, með síðan topp, í þröngum svörtum gallabuxum, hettupeysu, í svörtum (átti grænan líka) jakka úr Vinnufatabúðinni sem allir virtust vera í á þessum tíma......og hermannaklossum !! Ekki alveg lúkkið sem maður átti að venjast, enda saklaus sveitastelpa nánast hehe :o) En við kynntumst, ég man ekki hvernig það kom til að við drógum okkur saman.......en upp frá því urðum við nánast óaðskiljanlegar. Svo bættist við......hann Berti var í 101 að mig minnir og svo var það hann Maggi, hann var ekki í Hólabrekkuskóla en varð semt sem áður mjög góður vinur okkar. Svo voru það hann Sigurjón og Sigga, sem var hans þáverandi. Þessi hópur hélt mjög mikið saman, þó sérstaklega við 4, ég og Guðrún, Maggi og Berti.
Einhverju sinni var skólaball í Hólabrekku og við ætluðum nú að fara......en þar sem Maggi var ekki nemandi fékk hann ekki að fara inn. Þannig að við hin dissuðum bara ballið og ákváðum að fara í bíó. Ég man ekki betur en að það hafi verið oggó ponsu vín með í för.....ekkert mikið samt sko. Við ss. töltum uppí næsta strætó. sátum á golfinu aftast og létum eins og algjörir bjánar. Ekkert með læti samt, það var bara ofsalega gaman hjá okkur ;o) Fórum í bíó í Mjóddinni, á My Blue Heaven. Það voru örfáar hræður í salnum og við auðvitað nýttum okkur það, létum eins og fífl. Eitthvað hefur okkur leiðst myndin því við gengum út í hléinu. Og ég man ekki eftir að hafa horft á þessa mynd í heilu lagi síðan....kannski spurning um að leita hana uppi og horfa á hana hehehe :o) Fórum með strætó aftur uppeftir......og þegar við vorum komin þangað var ballið að klárast. Svona eftir á að hyggja hefur þetta verið skratti stutt ball nema tímasetningin hjá mér sé svona klikk ;o) Liðið er að tímast út og við ennþá í þessu agalega góða skapi.......Maggi tekur á sprett inní skólann, kemur hlaupandi út aftur með fullan svartan ruslapoka af flöskum og hleypur af stað uppí Hólagarð ! Og til baka aftur, hendir pokanum inn og við héldum áfram okkar leið ;o) Það þurfti ekki mikið til að gleðja mann á þessum tíma, maður auðvitað hló eins og asni að þessu ;o)
Við vorum yfirleitt heima hjá mér eða Guðrúnu, og síðar meir heima hjá Magga mikið. Eins og í sardínudollu inní herbergi að hlusta á tónlist og reykja. Amm, saklausa stelpan var farin að reykja ;o) Hélt auðvitað að mamma og pabbi vissu ekkert af þessu, þó svo að herbergið væri ólíft af reyk og hver sá sem vogaði sér að opna hurðina gekk á vegg !! Eitt kvöldið vorum við ss. heima hjá Guðrúnu. Hennar herbergi var ennþá minna en mitt, nánast bara pláss fyrir rúmið ( amk í minningunni) þannig að við hrúguðumst bara þar uppí og höfðum það kósí. Horfðum á eina mynd eða svo, hún hafði nefnilega sjónvarp og vídeó inni hjá sér. Svo vorum við bara að chilla eins og krakkar gera......hlustuðum á Egó og Utangarðsmenn......Metallica var líka mikið spiluð ;o) Spjölluðum um allt og ekkert. Ég hafði útivistartíma á þessum árum, en maður getur nú gleymt sér stundum. Amk þegar ég fór að tygja mig heim þá var komið brjálað veður. Bullandi snjókoma og vesen. Ég tölti heim, það var nú ekki langt, ég bjó í Vesturberginu og Guðrún í Austurberginu, og mamma og pabbi urluðust þegar ég kom þangað. Hvar ég hefði verið og hvað ég hefði verið að spá.......af hverju ég lét ekki vita af mér með veðrið svona brjálað og ég veit ekki hvað og hvað ! Ég man ekki af hverju þau hringdu ekki til Guðrúnar......eða hvort þau hringdu og það var alltaf á tali eða eitthvað, þetta var auvitað fyrir tíma gsm. Ég, aldrei þessu vant, sagði bara allan sannleikann. Við hefðum bara verið heima hjá Guðrúnu að horfa á vídeó og spjalla. "Og af hverju léstu ekki vita af þér útaf veðrinu?" Ég vissi ekkert um veðrið.....það var dregið fyrir gluggann og hvað haldiði að maður hafi verið að spá í því, akkúrat ekki neitt. En ég var ekki að gera neitt af mér, við gerðum það svosem sjaldnast, vorum svoooo stillt :o)
Ég þarf ekki annað en að hlusta á Egó, Utangarðsmenn eða Metallica, til að þau poppi uppí hausinn á mér og þessi tími. Það var ofsalega gaman að vera til þá, eins og mér kveið fyrir að flytja suður og þekkja ekki neinn......þau héldu mér gjörsamlega uppi, og ég þakka pent fyrir að hafa átt þau að vinum :o) Ég og Guðrún heyrumst ss. ennþá öðru hvoru.....að vísu er stundum langt á milli, sérstaklega á meðan hún var í námi í USA. Hún og Maggi búa saman í dag, Berta heyri ég af í gegnum hana. Ég er sú eina af þeim sem á barn, já eða börn.........4 stk, eitt fyrir hvert okkar, ég sé bara um þess hlið fyir okkur öll hehehe :o))
Við verðum að hittast fljótlega, öll 4...........ekki spurning :o))
Þetta fortíðarflipp var í boði Gerðu ;o)
Komin heim...Gerđa Kristjáns
.....úr höfuðborginni. Árný og Lena (Magdalena sko) komu og sóttu mig á slaginu 4 í vinnuna. Þá var Árný búin að fara og sækja strumpana mína á leikskólann og gefa þeim að snæða, og nesta þá upp. Ég að sjálfsögðu gleymdi slatta af drasli heima þannig að við komum við hér og svo ætluðum við að bruna af stað. Þá var Lena (ennþá Magdalena sko) orðin svo lasin að hún hætti við að koma suður. Hún var búin að vera slöpp en svo hríðversnaði það. Það var ógeðslega mikið svekkelsi :(
En kannski eins gott því að henni versnaði mikið um helgina. En eftir loforð um að drekka fyrir hana þá lögðum við af stað. Ferðin suður gekk vel, fórum með strákana í Garðinn til pabba síns og þaðan inní Keflavík til Jökuls og Oddnýjar þar sem við fengum gistingu. Fékk að sjá Stubb Snæ nýjasta frænda, algjör rúsínumoli :o)))

Á laugardagsmorguninn fórum við inní Hafnarfjörð þar sem við áttum tíma í framköllun, þ.e.a.s. lit og plokk. Vorum ógó fínar eftir það, loksins komnar með andlit :o) Ákváðum svo að gera þetta kvöld ennþá meira grand og fara í förðun líka seinnipartinn ;o)) Fórum aðeins í Smáralindina og tékkuðum okkur svo inná hótelið. Og vá, það er ekki að ástæðulausu sem þetta er Skápahótel (Cabin Hotel). Herbergin eru algjör frímerki að stærð. En duga víst til síns brúks til að sofa í......eins gott að það var ekki eitthvað annað í gangi hehehe ;o) Rúmprikið hefði ekki höndlað það ;o)
Sturtuðum okkur og svona, fórum svo aftur inní Hafnarfjörð og fengum ennþá fínna andlit :o)))

Erum við ekki fínastar ? :o))) Og takið eftir fínu tönnunum mínum :o))) Og fyrir ykkur sem lesið en hafið ekki séð mig, þá er ég þessi með ljósa hárið ;o)
Eftir þessa fínu meðferð hjá Bibbu fórum við niður á hótel aftur, og klæddum okkur í bingógallann. Vorum SVOOOOO fínar :o)) En þar sem Árný hefur ekki séð myndirnar ennþá þá sýni ég ekki myndina af henni. Þetta er hins vegar mynd af mér......frekar fín bara ;o))

Við fórum niður í lobbý og hittum allt hitt fólkið þar, fengum okkur fordrykk og svoddan nokk. Ég lét gabbast og fékk mér Malibu í trópí og þvílíka jökkið ! Ojjj barasta ! Aldrei aftur sko ;o) Rúturnar komu skömmu síðar og keyrðu okkur uppí Grafarholt í Gullhamra þar sem þetta var haldið. Þar var eitthvað böbblí í boði og það var ágætis á bragðið. Maturinn var þríréttaður og frábær !! Sjávarrétta dót eitthvað í forrétt, lambakjöt í aðalrétt og súkkulaðimús með ís í eftirrétt. Við erum ennþá að spá í þessu með kjötið......það stóð á matseðlinum að það væri svona og svona (þarna átti að standa eitthvað fansý smansý orð, eins og rétturinn hét en ég man það ekki) og með sveppakremi !! Nú spyr ég ykkur lesendur góðir.......þegar þið heyrið sveppakrem, dettur ykkur þá í hug partur af lambakjöts diski ? Nei ég hélt ekki :o)
Svo var eitthvað af skemmtiatriðum á milli rétta, misjafnlega skemmtilegt að vísu. Eitt stóð sérstaklega uppúr af þeim þó, Bjarni töframaður ! Já ég hélt að skemmtinefndin væri endanlega gengið af göflunum þegar einhver lubbi kom inná gólfið og kynnti sig sem töframann ! En ó boy sko !! Það sem maður hló......og allir !! Það bókstaflega grenjuðu allir úr hlátri, það var frábært :o)))
Vinir vors og blóma, með Begga úr Sóldögg í fararbroddi tróð svo upp balli. Við Árný, Anna Kristín og Heiðar, fórum skömmu eftir að ballið byrjaði. Við vorum búin að dansa slatta, syngja slatta, og Árný var búin að blóta kjólnum sínum ferlega mikið. Hún var í galakjól og eitthvað vildi hann flækjast fyrir löppunum á henni hehehe :o) Hér eftir verður hann (kjóllinn sko) þekktur sem helvítiskjólinn.
Við 4 fórum niður á hótel, skiptum um föt og fórum í bæinn í gallabuxum, betri skóm og rollunni. Rollan er ss úlpukápujakkinn minn ;o)
Stóðum okkur ágætlega í að skála fyrir öllu því staffi sem komst ekki með, þó sérstaklega Lenu. Stöldruðum þó ekki lengi við í bænum, Árný sagði að við Anna værum orðin svo mikil gamalmenni af því að við vorum að sofna ;o) Fórum á Hlölla og fengum svo gamlan félaga til að koma og sækja okkur og keyra okkur á hótelið. Drengurinn keyrir nefnilega taxabíl ;o) Hann gerði það með sóma.....skammaði okkur svo fyrir að hafa ekki dregið sig með á djammið og kíkti í staðin uppá herbergi í "kaffi". Sátum svo á spjalli í slatta langan tíma.....ég held að klukkan hafi verið að verða hálf sex þegar við Árný fórum að sofa.
Vöknuðum að sjálfsögðu alltof snemma og með hausinn fullan af hori ! Ekki beint spennandi það. Fórum svo að taka okkur til og tölta af stað. Fórum í Garðinn og sóttum strákana, vorum þá búnar að fara í Bónus og að éta á KFC. Komum við í Mosó og sóttum Svanhildi, hún fékk að fljóta með heim ;o)
Ferðin heim gekk ferlega hægt......heilsan var ekki uppá það besta. Nei ekki þynnka heldur flensudrulla. Þurftum að stoppa í Borgarnesi og brynna liðinu, og þaðan svaf Viktor Óli alla leiðina heim. Árný keyrði að Brú og ég tók þá við. Við vorum komnar á Blönduós um hálf níu í gærkvöldi :/
Var svo ákveðin í að ná að ganga frá draslinu áður en ég settist niður.......þeyttist hérna um eins og fíbbl og gekk frá úr töskunum, gekk frá Bónus vörunum, taka óhreint og setja í vél, koma strákunum í rúmið, gefa Viktori svo hann gæti sofið áfram, hengja uppúr vélinni, tala við flóttamanninn........og ó boy hvað ég var sprungin þegar ég fór að sofa. Fjúff..........spurning um að geyma svona djamm í svolítið langan tíma ;o) Eða ná sér ekki í flensu í leiðinni næst þegar maður fer, ha ? ;o)
Annars vorum við Árný að stefna að "Húsmæðraorlosferð" í byrjun maí. Leigja bústað einhvers staðar, með heitum potti og dóti, og bara slaka á og djúsa ;o) Hvernig lýst ykkur á ? Það yrði alveg þess virði að stefna á finnst mér :o)
Jæja, nenni ekki að blaðra meir.......kveð ykkur í kútinn í bili, yfir & út !

Ég er.....Gerđa Kristjáns
.....útskrifuð frá tannlækninum :o)))))))))
Fór til hans í síðasta sinn í morgun, eitt stykki rótarfylling svona í restina og málið er dautt :o)) Og ekkert lítill munur að sjá skvísuna ( það er sem sagt ég) Rétt passlega í tíma fyrir djammið um helgina hehehe :o))) Og trúið mér, ég hef aldrei farið jafn ört til nokkurns tannlæknis, sem hefur gert við svona mikið í trantinum á mér.....fyrir jafn hlægilega lítinn pening !! Ég varð eiginlega kjaftstopp þegar hann nefndi heildartöluna ! Hver hún er, er bara á milli mín, hans og debetkortsins míns sko ;o) En believe you me.......ég kem til með að halda mig við þennan doktor, og ef hann vogar sér að flytja frá Króknum, þá elti ég hann uppi hehehe :o)))
Vildi bara koma þessu frá mér, ég er svo ógó ánægð með þetta allt saman að ég er við það að springa :o))))))
Kveð ykkur í kútinn í bili......yfir&út !
Vildi bara koma þessu frá mér, ég er svo ógó ánægð með þetta allt saman að ég er við það að springa :o))))))
Kveð ykkur í kútinn í bili......yfir&út !
Ţreytt, ţreyttari, dödGerđa Kristjáns
Jæja fólk, þá er dagur 3 í vinnunni liðinn og það gengur bara mjög vel. Þetta er smá sprettur á morgnana, þar sem leikskólinn opnar kl. 7:45, sem gefur mér 15 mín til að koma Matthíasi inn á Fjallabæ, skutla Þorsteini (á hvort eð er leið um þar), fara með Viktor Óla á Mánasel, og að koma mér í vinnuna á réttum tíma. En það hefur tekist með sóma hingað til :o)) Svo er sami spretturinn eftir vinnu þar sem leikskólinn lokar kl. 16:15 og ég er að vinna 16 ;o)
En mikið var samt gott að fara aftur að vinna, hef saknað fólksins "míns" þar. Gaman að hitta "gamla" liðið aftur, og kynnast nýju staffi :o) Og að sjálfsögðu fastakúnnarnir, þeir eru æði, buðu mig velkomna aftur til starfa og allt :o)))
Annars gengur lífið sinn vanagang hér heima fyrir.....voðalega lítið að frétta hér ;o)
Á föstudag eftir vinnu hef ég ca. 10 mín til að svæla eina reykju áður en það verður laggt af stað suður. Árný og Lena (Magdalena þ.e.a.s.) eru ekki að vinna þann dag, þannig að Árný ætlar að sækja strákana fyrir mig á leikskólann, gera þá klára, og sækja mig svo þegar ég er búin. Þá ætlum við að bruna suður í Garðinn, skilja guttana eftir hjá pabba sínum, fara inn í Keflavík og gista hjá Oddný og Jökli, og svo á laugardeginum ætlum við ásamt fleira staffi héðan og af öðrum Esso stöðvum, að fara á vetrarfagnað.......ss. matur, skemmtun, ball og loads af fjöri :o))))) Gistum á hóteli á laugardagsnóttina, þannig að maður ætti nú að geta fengið sér í eina tá eða svo :o)

Þetta er ss það sem er að gerast á Hlíðarbrautinni í dag, sprettur, vinna, sprettur, þvo, taka til, elda, vaska upp, baða og koma í bælið, þykjast slaka aðeins á eins og núna hehe :o)
Sit með lappann í kjöltunni í stofunni og er að horfa á sjónvarpið með öðru ;o) Fjölhæf stelpa sko ;o)
Kveð ykkur í kútinn í bili........yfir & út !!
Ohhh ŢorsteinnGerđa Kristjáns
er snillingur, hann getur líka komið með gullmola ;)Í gærkvöldi, eftir mat, var hann að spila í Playstation tölvunni.....þegar var komið að háttatíma fór ég inn og sagði honum að slökkva, hátta og tannbursta. Fer svo fram og svo leið góð stund......og hann ennþá í tölvunni. Þannig að ég fór inn og sagði að fjarstýringin væri farin í timeout. Hann getur nefnilega ekki stillt á tölvuna nema að hafa fjarstýringuna. Hann varð nú frekar spældur, það verður að segjast.
Svo núna rétt áðan kemur hann og er að reyna að milda þetta og segir við mig:
"Mamma ég misheyrði mig í gær, ég hélt þú hefðir sagt bráðum"
Og ég gat ekki annað en hlegið.....hvernig misheyrir maður sig ?
Alveg ađ koma.....Gerđa Kristjáns
.....já það er margt sem er alveg að koma ;) Ég byrja að vinna á mánudaginn, Viktor Óli verður fyrsta fulla daginn á Mánaseli á morgun, og þar sem ég fór tvisvar sinnum til tannsa í þessari viku, þá á ég bara 1 skipti eftir !! Vúhú :o))) Þetta er aaaaalveg að verða búið :o)))) Og þvílíkur munur !! Verð með svo shiny bros að þið þurfið bara sólgleraugu sko ;) Þúsund þakkir til Röggu sys fyrir að nenna að flækjast þetta með mér í dag ;o) Og til Sollunar fyrir að taka Matthías að sér eftir leikskóla ;o)
Ég fór með Viktor í 6 mánaða skoðun í gær, setti inn tölurnar á síðuna hans......en læt fylgja með hér líka.......drengurinn er orðinn 9,850 kg !!! Algjör bolla :o)) En það sá maður svosem fyrir ;o)) Fellingar útum allt ;o)) Í tilefni af því, eða af illri nauðsyn öllu heldur, þá fór ég og verslaði nýjan bílstól handa honum í dag. Það er eiginlega orðið ómögulegt að hafa hann í litla baby stólnum lengur ;o) Bæði er hann alveg að ná þyngdinni sem stólnum er ætlaður, + það að drengurinn er bara orðinn of langur í hann. Þannig að áðan fór ég út og festi nýja stólinn í bílinn........prufukeyrsla á honum í fyrramálið ;o)

Annars er bara mest lítið að frétta, ætti kannski að koma mér í bælið þannig að maður eigi orku á morgun til að þrífa hérna. Um að gera að nota daginn, svona áður en maður fer að vinna og á meðan drengirnir eru í leikskóla/skóla ;o)
Bið að heilsa ykkur í bili :o)
Yfir & út !
Bið að heilsa ykkur í bili :o)
Yfir & út !
Ţá er komiđ ađ ţvíGerđa Kristjáns
Litla barnið mitt er byrjað í aðlögun á leikskóla !! Og hann er bara 6 mánaða gamall síðan í gær ! Sjæs hvað tíminn er fljótur að líða. Ég byrja að vinna aftur á mánudaginn eftir viku og það er kominn smá spenningur í mig, get ekki neitað því ;o) Hlakka til að hitta allt fólkið aftur og hitta nýtt staff :o)Helgin var temmilega róleg, við fórum á laugardaginn til Sollu í nýbakaða kanilsnúða, og Viktori Óla fannst þeir æði :o)) Enda mikið matargat þar á ferð ;o)
Svo var farið heim og horft á handboltann, strákarnir tryggðu sér sæti í 8 liða úrslitum eins og flestir vita.
Á sunnudaginn komu Árný og Solla hingað. Þær settu sem mission þess dags að finna föt á mig fyrir Esso skrallið 10. feb næstkomandi. Solla skrapp heim til sín og kom til baka með fulla tösku af fötum og ég send inní herbergi að máta ;o)
Missionið heppnaðist með ágætum......
Mikill asnagangur í okkur þennan dag, eins og "flóttamaðurinn" fékk að heyra af hehehe :o) Boltastrákarnir töpuðu fyrir Þjóðverjum.......
Svo kom Ragga systir áðan og skammaði mig fyrir bloggleti ! Þetta er manneskja sem nennir ekki að blogga sjálf hehehe ;o)
Ég lufsaðist loksins til þess að setja inn myndir af strákunum á heimasíðuna hans Viktors Óla, linkurinn er hér til vinstri ef þið viljið kíkja á þær ;o)
Áframhaldandi aðlögun í fyrramálið, svo tannsi á Króknum eftir hádegið.......ætli ég verði ekki hjá mömmu að horfa á landsliði taka Dani í nefið ;o)) Vona að leikurinn falli okkur í vil........það verður örugglega ágætis að horfa á þetta með mömmu, hún yfirgnæfir mig ábyggilega í öskrunum hehehe ;o)
Í morgun eignuðust Jökull frændi og Oddný son, til hamingju með guttann elskurnar :o)))

Ætla að láta þessu lokið í bili........yfir & út !
How to clean the houseGerđa Kristjáns
1. Open a new file in your PC .2. Name it "Housework."
3. Send it to the RECYCLE BIN.
4. Empty the RECYCLE BIN.
5. Your PC will ask you, "Are you sure you want
to delete Housework permanently?"
6. Calmly answer, "Yes," and press mouse button firmly......
7. Feel better?
Works for me!